14. júlí 2010 18:42 |
Handan fyrirsagnanna |
Nú nýverið kom út skáldsagan Morgnar í Jenín, eftir palestínsk-bandaríska rithöfundinn Susan Abulhawa, hjá Forlaginu í þýðingu Ásdísar Guðnadóttur. Ég varð þeirrar ánægju aðnjótandi að vera viðstaddur bókakynninguna í Þjóðmenningarhúsinu, og hlýða á fyrirlestur Susan og upplestur úr bókinni, og keypti bókina í kjölfarið.
|
meira... |
| |
13. júlí 2010 10:42 |
Um þá sem eiga aðeins óskir |
Tilviljanirnar eru einhver merkilegasti og jafnframt vanmetnasti drifkraftur alls skáldskapar – og það á stundum ekki síður við um bókmenntarýni. Þessu áttaði ég mig ekki fyllilega á þegar ég sat í farþegasæti í bíl á ferð um hringveginn og las Píslarvottar án hæfileika eftir Kára Tulinius. Þá komum við á Höfn í Hornafirði – og fundum aðalkaffihús bæjarins, Café Tulinius. Ég tók bókina auðvitað með og las áfram með tebolla og pönnukökum, en það var þó önnur tilviljun sem skipti meira máli en nafn staðarins, það var tilvitnun eftir Washington Irving sem var fest við annan enda tepokans: „Great minds have purposes, others have wishes.“
|
meira... |
| |
11. maí 2010 12:57 |
Nördarnir bjarga deginum, enn og aftur |
Árið 2000 sló fyrsta X-Men myndin í gegn og tveimur árum seinna sló fyrsta Spiderman myndin ennþá rækilegar í gegn. Síðan þá hefur ofurhetjæðið í Hollywood bara magnast ef eitthvað er. Spiderman-myndirnar þrjár, Iron Man og The Dark Knight eru allir í hópi tekjuhæstu mynda allra tíma. Það hlaut að koma að því að það kæmi út mynd sem gerði grín að þessu öllu saman, og þá er ég ekki að tala um heimskulega „spoof“ mynd eins og Superhero Movie heldur mynd sem leikur sér með hugmyndina um hvað felst í því að vera ofurhetja.
|
meira... |
| |
5. maí 2010 15:30 |
Dauðrarokk, kirkjubrunar og McDonalds |
Allt frá tímum Abba hefur Svíþjóð verið eitt helsta útflutningsland evrópskrar popptónlistar, og hafa hljómsveitir eins og Roxette, Ace og Base og Cardigans selt plötur í bílförmum. Hinum megin við Svinesundsbrúna hefur framleiðslan gengið tregar, a-ha er um það bil eina norska popphljómsveitin sem hefur komist nálægt því að skáka Svíunum. En ef það er á einhverju sviði sem Noregur er leiðandi á Norðurlöndunum, þá hlýtur það að vera í framleiðslu Black Metal tónlistar. Eða hvað?
|
meira... |
| |
5. maí 2010 09:50 |
Trúðurinn og vatnadísin |
„Ég er hræddur af því ég er byrjaður að vona.“ Þetta er ótti óvirks alkóhólista, líklega ótti flestra sem eru haldnir sjálfseyðingarhvöt á háu stigi, hvort sem sú hvöt birtist í fíkn í vímugjafa eða einhverri annarri hugvitsamlegri leið okkar til að tortíma sjálfum okkur. Nánar tiltekið er þetta ótti trúðsins, Syracuse sem er uppnefndur Sirkus, mannsins sem allir treysta að klúðri hlutunum fyrr en síðar, líka hann sjálfur.
|
meira... |
| |
4. maí 2010 11:53 (1 lesandi hefur sagt álit sitt) |
Dauðastríð og fastir liðir |
„Hver er grundvöllur allra hinna miklu trúarbragða mannkyns?“ spyr hinn mikli meistari Leo Tolstoj, leikinn af Christopher Plummer.
Ungur einkaritari hans, Búlgakov, leikinn af James McAvoy, stendur agndofa. Það sama gildir um salinn. Fáum við nú loksins að heyra svarið við spurningunni um lífið, alheiminn og þetta allt saman?
|
meira... |
| |
30. apríl 2010 14:30 |
Syndir feðranna |
Mikið hefur verið látið með myndina Das Weisse Band, sem vann meðal annars Gullpálmann í Cannes og Golden Globe verðlaunin fyrir bestu erlendu mynd. Eftir áhorf getur maður helst fundið þrjár ástæður fyrir þessari lotningu.
1. Myndin er löng.
2. Myndin er svart/hvít
3. Myndin gerist fyrir tæpum 100 árum síðan.
|
meira... |
| |
26. apríl 2010 09:28 |
Í einskismannslandi |
„Sá sem horfir á Elvis og dreymir ekki um að verða Elvishlýtur að vera eitthvað skrítinn,“ sagði Bruce Springsteen eitt sinn. Af öllum þeim sem hafa horft á Elvis og dreymt um að verða hann tókst JohnLennon einna best að láta drauminn rætast. Eða eins og hann segir í Nowhere Boy: „Hvers vegna lét guð mig ekki vera ElvisPresley?“ „Vegna þess að hann vildi að þú yrðir JohnLennon,“ svarar móðir hans. Það eru ekki mörg nöfn sem hægt er að nefna í sömu andrá og Elvis, en JohnLennon er eitt af þeim.
|
meira... |
| |
25. apríl 2010 16:24 |
Bréfberar og bardagamenn |
20. apríl 2010 12:04 |
Ímyndunarheimur Terry Gilliam |
16. apríl 2010 10:13 |
Erfðaprinsar og ófreskjur |
8. apríl 2010 12:57 |
Hvolpur í banka |
26. mars 2010 12:17 |
Kynni af Kundera |
23. mars 2010 11:09 |
Brauð og leikar! |
16. mars 2010 10:45 |
Tim Burton og tölvugerða undraleysið |
9. mars 2010 15:15 |
Ummyndanir eiga sér enn stað |
5. mars 2010 15:32 |
Hrifla í góðri trú: Rýni til gagns um gott hjarta? |
5. mars 2010 09:24 |
Feitu stúlkunnar draumur |
25. febrúar 2010 12:48 |
Uppgjör við útrásarvíkingaklámið? |
23. febrúar 2010 10:23 |
Vondir plebbar |
16. febrúar 2010 11:28 |
Leikrit um tilgangsleysið? |
15. febrúar 2010 10:00 |
Á mærum myndlistar og bókmenntatexta: Ufsagrýlur í Hafnafirði |
10. febrúar 2010 11:45 |
Að skapa veröld |
4. febrúar 2010 15:42 |
Sjálfsmorðssæla barnsins |
eldri fréttir
|